Það hefur margt gerst eða "skeð" hér í Danmörku síðan síðasta blogg leit dagsins ljós, enda muna elstu menn varla hvenær ég bloggaði síðast. Því hef ég ákveðið, öllum að óvörum, að taka upptalninguna á þetta!
Frá því ég bloggaði síðast hef ég:
-villst í Horsens og fundist öll hús líta út fyrir að geta verið lestarstöðin
-horft þrisvar sinnum í röð á Söngvaborg 3
-farið í stóran íþróttasal sem er fullur af trampólínum og íslendingum að hoppa..!
-útskýrt hrakfallasögu á ensku, með dönskuslettum
-farið í margréttað afmælishlaðborð til Evu Sonju ásamt læknanemum og vil ég meina að ég geti farið beint á kandídatsárið, ég lærði svo mikið í læknisfræði við matarborðið.
-lært sænskan drykkjuleik með munninn fullan af íslensku brennivíni
-farið í sólgleraugnaafmæli hjá Ástu
-hitt Kiddann minn
-séð íslenska vinkonu mína tilkynna tveimur lögregluþjónum að hún sé með kynfærin á bakinu
-lært að joggla með þremur boltum
-fengið grillaðar nautalundir a la Viktor Hólm
-gleymt myndavélinni minni heima hjá Hröbbu og Viktori
-...og í framhaldi af því efast stórlega um geðheilsu Hröbbu minnar, Viktors, Tinnu og Dadda, dæmi hver fyrir sig
hér!-eftir að hafa skoðað myndirnar (líka þær ritskoðuðu),þá hef ég lært að þekkja Dadda út frá öðrum líkamshlutum en andlitinu ;)
-náð forystu í tveggjamannakapalkeppni okkar Hröbbu
-boðið Dísinni litlu í sirkus
-og séð "Litla kall" hestinn hennar Línu Langsokk leggjast upp í rúm og breiða yfir haus þangað til lítill hundur kom hlaupandi með risastóra vekjaraklukku til að vekja hann (er það bara ég eða eru sirkusatriði að verða súrrealískari með árunum?!)
-horft á Viktoríu Dís og Huldu á fílsbaki og langað líka...
-séð lítinn gaur fara þrefalt heljarstökk, bundinn með báða fætur við mjóa járnstöng
-aftur fengið topp, eftir að Kiddi sæti klippari réðst á hárið á mér
-eldað fyrir fósturfjölskyldu mína
-Pantað mér ferð til Parísar ásamt Héðni mínum, þar sem við munum mála borgina eldrauða í maí
-hryggbrotið fertugan afrískan leigubílstjóra sem vildi fá símanúmerið mitt upp í leigubílakostnað, ásamt því að hafa mikinn áhuga á Íslandi og hjónaböndum íslendinga og afríkubúa...!
-fundist hún Þórhildur mín vera svo langt í burtu en talað samt við hana á hverju kvöldi (eða nóttu) þegar nýr dagur er að byrja hjá henni í Ástralíu
-orðið fyrir dúfu
-legið í sólbaði
-hlakkað til að flytja heim til Íslands