Saturday, August 11, 2007

Hrabban mín 30 ára!!!

Þann níunda ágúst varð Hrabbsið mitt þrítugt!!! Húrra, húrra, húrrrrrrraaaa!!!


Þessi síkáta Gyða Sól getur allt en sem dæmi er hún best í handbolta, tveggjamannakapli, snúðagerð, trampólínhoppi, dönsku, og "geðheilsuvinasinnabjörgun" (nýtt orð sem var fundið upp af illri nauðsyn þegar ég steig á danska grund). Hún (og Viktor auðvitað) eru rosalega góð í því að búa til börn og er enginn vafi að nýja nóvemberkrílið verði jafn vel heppnað og Viktoría Dís. Elsku Hrabba mín, til hamingju!

1 comment:

Anonymous said...

Takk elskan og auðvitað fannstu fram bestu myndina af mér.. Viktoría þekkti mig ekki einu sinni á þessari mynd haha..
Sakna þín
Hrabba