Tuesday, September 20, 2005

Loksins fleiri linkar

-Kolla Tálknafjarðarmær sem sá svo ljósið og geriðst Hvergerðingur. MLingur...þarf að segja meira :)
-Dröfn (Dorfn) MLingur og Djúpavogsbúi
-Svala svala, læknanemi og stuðbolti Árósa
-Huldan mín, æskuvinkona úr Hvg en er nú Selfyssingur. Þar sem hún er svo frábær er hægt að fyrirgefa henni það :)
-Alma frænka...datt út af linkunum vegna bloggleti, spurning hvort þú getir haldið þetta út núna ezkan mín

...annars fannst mér dræm þátttaka í sleikkönnuninni minni í síðasta bloggi, fann út að kannski telji margir þetta svo óþarfa spekúleríngu að ekki taki því að tjá sig um þetta. Takk samt kærlega yndin mín, sem það gerðuð. Er annars að fara að blogga um ömmu fljótlega en kann ekki við það fyrr en lengra er liðið frá sleikblogginu, veit nefninlega að hún á "vin" !

5 comments:

Dilja said...

shit hvað ég er snögg... sá alveg breytingarnar á blogginu þínu.
já svona er maður flottur á því erlendis...alltaf í sleik við tölvuna sína og bíður eftir því að fólkið sitt segi eitthvað töff á síðunni sinni

Anonymous said...

Fyndið, þú ráðlagðir mér í sambandi við lyftumómentin að verða fyrir bíl svo fólk gæti horft á löppina á mér... Heyrðu, ég reddaði þessu - fótbraut mig.

Bless.

Anonymous said...

ríða - sjúga - sleikja!!!
er það það eina sem þið unga fólkið hugsið um í dag???

og í alvöru sigga, varstu að fótbrjóta þig, heppinn að matta hafi ekki ráðlagt þér einhvað annað sbr. það nýjasta...... ég er búin að brotna 9 sinnum, ég ráðlegg þér að krota ekki á gifsið...þú færð ógeð á krotinu!
láttu þér batna ezk ;)

-hlé

Anonymous said...

Hlátur.

Ég var einmitt að spá í að fá vini mína til að skrifa á gipsið. Ég átti mér nefnilega draum þegar ég var lítil um að fótbrotna og láta skrifa á gipsið skilurðu...en það bara gerðist aldrei.

Hvað segirðu, á ég sem sagt ekki að gera það?

Og 9 sinnum? Ert ekki að grínast? Ég er hætt að vorkenna mér.

Anonymous said...

Það er búið að klukka yður. 5 gagnslausar staðreyndir takk.

Luv, Una