Wednesday, June 20, 2007

Líf mitt sem Matthea

Mig langar að blogga í gleðifréttastíl, í hnyttnum stikkorðum sem lýsa líðan minni og gjörðum síðan ég bloggaði seinast. En ég er ekki skyld honum Bjössa ömmubróður mínum fyrir ekki neitt og því kemur hér veikindalisti undanfarins mánaðar, en þó skal ég reyna að halda saurlýsingum í lágmarki, þó ég þykist vita að það myndi Bjössi frændi sko ekki gera...

Ég fór seint niður úr skýjunum eftir júbileringuna. Já hamingjan og gleðin umléku mig svo að ég hélt að ég væri komin með harðsperrur í kinnarnar af brosi helgarinnar...en nei, ónei. Þessi harðsperrutilfinning breyttist smám saman í doða, sem varð að bólgu sem lak niður eftir kinnunum á mér og niðrí háls og aftur fyrir eyra. Ef þið eruð farin að sjá mig fyrir ykkur eins og Martin Short í Pure luck eftir að hann var stunginn af flugunni, þá er það ansi nærri lagi. Eftir læknaheimsóknir með tilheyrandi biðum, öðru og þriðja áliti þar sem ég þurfti aftur og aftur að segja saklausum rómi að ég hefði bara verið að drekka djús og lesa blaðið þegar fílamaðurinn í sjálfri mér braust svona skyndilega út, varð niðurstaðan sú að sennilega hafi geislajoð janúarmánaðar sest í munnvatnskirtlana á mér sem taka upp á því að bólgna upp við hinar og þessar aðstæður! Gaman
Ég sem er nýfarin að geta gengið upprétt aftur eftir að hafa rústað bakinu með því að þræða einfalda stíga Esjuhlíða...

Ég er hætt að vinna í Öskjuhlíðarskóla. Ætla að gerast unglingakennari í Brúarskóla á næsta ári en sit við tölvu í ráðuneytinu í sumar, eins og sl. sumar.
Við Gunni skelltum okkur norður á Akureyri í tveggjadaga fríinu mínu, á milli vinna, í síðustu viku. Við gistum á Laugum í Dalasýslu á leiðinni og ég tapaði mér í Vegahandbókinni... svona er þá í heimi hinna fullorðnu, Héðinn! ;)

En aftur að óförum mínum. Eftir vinnu í dag ákvað ég að halda upp á að bólgan í kinnunum (sem náði hámarki sínu í sólinni á Austurvelli í hádeginu þar sem íslendingar gátu sólað sig og horft á fríkið, Mattheu í leiðinni) væri að hjaðna og að bakverkurinn (sem ætlaði að fara að láta aftur á sér kræla í gær) væri á "bak" og burt. Ég bretti því upp ermar og flokkaði dósir og flöskur og brunaði í endurvinnsluna. Þar sem toppstykkið er það eina sem lítið hefur brugðist mér að undanförnu, átti ég ekki von á því að lenda í nokkrum samskiptaörðugleikum við afgreiðsluna, en annað kom á daginn. Konan sem lætur mann fá peninginn við afgreiðsluna var að segja mér eitthvað, sem ég ekki heyrði því hljóðneminn sem hún átti að tala í stóð eitthvað á sér.. Ég greip þá til "mest notaða orðsins í sambúð okkar Þórhildar í Mávahlíðinni", "HA" og færði eyrað alveg að hátalaranum sem var í glerinu á milli okkar... hrökk þá hljóðneminn í samband, ásamt því að kellugreyið hafði hækkað róminn "VILTU AÐ ÉG LEGGI ÞETTA INN Á DEBETKORTIÐ ÞITT!!!!!!!" Þetta er sennilega síðasta setningin sem ég heyri á ævinni því eftir að hafa klæjað lengst inní heiladingul, heyri ég bara suð... og allt þetta fyrir skitinn fimmtánhundruðkall!!

Það bjargaði þó deginum þegar ég var stödd á matsölustað fyrr í kvöld þar sem hálfstálpaðir unglingar, starfsmenn á matsölustaðnum hölluðu sér upp að afgreiðsluborðinu og nenntu greinilega ekki að vera þarna. Kona með þrjá litla stráka var á borðinu við hliðina á mér og elsti strákurinn, kannski fimm/sex ára gekk um staðinn og horfði á fólk og boraði í nefið. Hann labbaði upp að afgreiðsluborðinu til unglinganna og tilkynnti þeim að hann hefði misst tönn.. svo gapti hann til þeirra til að sýna þeim og þau gerðu sem þau gátu til að sýnast áhugasöm en tókst ekki. Hann gekk aðeins um staðinn og kom svo aftur að afgreiðsluborðinu, spurðu hvort þau ættu lítinn poka.. opnaði lófann og út valt lítil, hvít, blaut og smá blóðug tönn... þessu áttu unglingarnir ekki von á og hryllingssvipurinn á pæjunum var óborganlegur!
Sá litli fékk þó tóma kokteilsósudollu til að setja tönnina í og valsaði hann ánægður um staðinn og uppskar aðdáunaraugnaráð bræðra sinna sem bíða þess nú að tennurnar þeirra fari að losna!

Þeir sem eru enn að bíða eftir að ég sendi þeim myndir úr júbileringunni; ég er ekki búin að gleyma því, póstforritið er bara e-h að stríða mér.. Myndirnar koma vonandi bráðum.

Brúðkaup Braga og Eyglóar á laugardaginn.. gaman!

12 comments:

Sigrún Ósk said...

Nei, Matthea!!

Nú hættir þú! Ég á ekki eftir að geta sofnað úr samviskubiti fyrir að hlæja dátt að öllu saman.

Annað hvort skiptir þú um bloggstíl eða þú færð hláturíblandaða samúð héðan! Hehe.

Gleður mig samt ósegjanlega að bólgan er á faraldsfæti og að þeir komust að því hvað amaði að. Hlédís var búin að halda mér vel upplýstri um gang mála.

Svo ætla ég bráðum að fara í Kalla klínings búninginn og koma í heimsókn með Hlésí - orðið alltof langt síðan síðast!

Knús í krús,
Sigrún

Dilja said...

elsku matta,
diljá saknar þín!
var að koma aftur frá DK og núna verðum við að fara að hittast!!
"ég vil ekki tapa þér"!!!!

gott að heyra að bólgan sé að hjaðna (þó það sjáist líklegast ekki...;)

heyrumst á morgun og við verðum að finna tíma innan viku til að hittast! OK?

kossar og knús af njálsgötunni

Asdis said...

Aldrei nein lognmolla í kringum Skrattheu :-) Saknsakn en sjáumst bráðum! Kiss,fís

Anonymous said...

Elsku Matta - eftir að hafa helgið nóg af þessu þegar ég talaði við þig í símann hló ég enn þá meira núna. Hvað er þetta annars með ykkur frænkurnar og hmastraeinkenni! Tókstu ekki örugglega myndir;)
Diljá er ekki sú eina sem saknar þín...Með fráhvarfseinkenni!!!
Knús,
Alma Ýr

Anonymous said...

eg held bara ad eg elski tig!!

og hehehehe tetta med hamsturinn er nottlega bara thofff.. engin er ohomstrud paeja.. eins og maltaekid segir ,)

knus
-hle

Anonymous said...

Shitturinn Matta hvað þú ert óheppinn. Var í vandræðum hérna áðan að reyna að bæla niður hláturinn(SORRY)til þess að vekja ekki Ása. Vona að eyrnasuðið sé batnað. Ég belgist alveg út þessa dagana nánast allstaðar nema í andlitinu en ætli ég eigi ekki líka eftir að fá svona hamstraeinkenni fljótlega eins og þið systur mínar. Þarf ekki að taka það fram en þú ert snilli.

Anonymous said...

Gleymdi að taka það fram en síðustu skilaboð eru frá mér, Arndísi. Sendi líka bataknús frá mér til þín.

Anonymous said...

Æji þú ert nú bara fyndin kella.... maður getur ekki annað en ímyndað sér visuelt vitleysuna sem þú ert að grafla... hin besta kómedía.... milljón bataknús af tjelevej .... til hamingju með nýtt starf í vetur....

The main duck said...

Þú ert algjör motta Matta! Ég hef sjaldan hlegið eins mikið að einni bloggfærzlu áður...

Knús og saknaðarkveðjur.

Sjonni Aðalönd

Monika said...

Þú ert sú eina sem fær mig til að virkilega skella uppúr við blogglestur. :)

Vonandi hefurðu það gott Matta mín.

kveðja, Monika.

Anonymous said...

Ég ætla blanda mér hér með í aðdáendahópinn þinn, elsku Matta.
Eyrún

Matta said...

Takk fyrir falleg komment djásnin mín... þið eruð æði!