Kennarinn Skratthea veit og kerfið kann á,
börnin lærdómin þurfa og verða að fá.
Einhverfa,fjölfötlun,dóp og snerting óbein,
fræðsla og góðmennska,hlýan, hún er hrein.
Kennarinn Skrattthea laun frá ríkinu fær
Skítalaun, en henni er nær.
Einhverfa, fjölfötlun dóp og rugl
Ætli hún fari ekki beina leið inná BUGL (barna og unglinga geðdeild landspítalans)
Viðlag:
Fyndin og falleg hún fegrar mig með,
með henni ég lífslöngun hleð.
Félagslegt sleipiefni Matthea er,
hláturinn ber hún með sér.
Matthea kemur frísk Danmörku frá,
ákveðin í að setja mark sitt Laugarnesveginn á.
Hvað þarf að gera? jú!! Baðkerið hressa þarf við,
flagnandi blátt er litur sem ég sætti mig við.
Viðlag:
Fyndin og falleg hún fegrar mig með,
með henni ég lífslöngun hleð.
Félagslegt sleipiefni Matthea er,
hláturinn ber hún með sér.
Flest okkar kunna kirtlana sína á,
en Matthea kaus að bíða og sitja hjá.
Óþarfa líffæri hún losar sig við
sem gætu tafið og truflað framhaldið.
Viðlag:
Fyndin og falleg hún fegrar mig með,
með henni ég lífslöngun hleð.
Félagslegt sleipiefni Matthea er,
hláturinn ber hún með sér.
Gunni í fyrsta bekk og til dagsins í dag
hljóðlega fór,en klárlega kunni sitt fag.
Broddar,gleraugu,hippaskott heilluðu hann
í Mattheu Sigurðar ástina hann fann.
Viðlag:
Fyndin og falleg hún fegrar mig með,
með henni ég lífslöngun hleð.
Félagslegt sleipiefni Matthea er,
hláturinn ber hún með sér.
(höf, Hlédís og Þórður Freyr)
5 comments:
Frábært! Við hvaða lag á að syngja þetta? (svona ef mig langar til að hrella nágrannana og börnin)
Vá hvað þetta er flott hjá þeim!!! Ekki amalegt að fá svona texta saminn um sig. Annars var ég farin að hafa áhyggjur af þessu bloggleysi hjá þér! Glöð að þú sért ekki alveg hætt. Gleðilega páska til ykkar Gunnsa. Kveðja Dröfn
heir heir, til hamingju með afmælið, þó seint sé, mín kæra!! kossar og knús, þín vinkona og nágranni Signý Þóra
Ég er leynilegur aðdáandi
koma svo!!! bloggeddíblogg!
Post a Comment