koma hér tilgangslausar staðreyndir um mig:
-fram að 3 ára aldri var "gólfteppahlaðborð" mitt uppáhald...ég skreið um og át ló sem safnaðist í teppin. Er ennþá stundum kölluð Lóa af fjölskyldu minni
-ég hef opnað bílinn minn (með lykli) en tekist að týna lyklinum af kippunni áður en ég gat startað bílnum (og þurft að láta senda mér aukalykil með leigubíl)
-ráð mitt við hálsbólgu er að kreista hvítlauk út í kakó...
-ég hef orðið fyrir bíl, fengið krabbamein, látið taka úr mér háls og nefkirtla, fengið heilahristing, og brákast á bakinu...en mér finnst verst að fara til tannlæknis
-ég hef einusinni pissað í mig af hlátri og ég man hvar og hvenær, en það er ekki sjens að ég geti rifjað upp brandarann
ég klukka svo Héðinn, Hlédísi og Braga
3 comments:
Klukk Matta!
Þú ert skemmtilegasti og fyndnasti vinur minn.
ooooohhhhhhhhhhhhhhhhhhhh takk matta.
Þú ert náttúrulega bara snillingur....
Post a Comment