Saturday, May 19, 2007

Long time...

Hádillí!
Í gær fékk ég afmælisgjöf frá Arndísi og Ása. Þau buðu mér í Laugar spa þar sem ég fékk nudd beint frá himnaríki og svo slökuðum við Arndís á í pottunum, gufunum og dekrinu þarna í baðstofunni, nörtuðum í salat, kjöftuðum og losuðum okkur við allar áhyggjur heimsins.
Takk takk takk takk takk takk takk takk takk...

Við G minn skelltum okkur í sveitina um daginn og fengum lánaða eina prinsessu sem er alveg að verða sex ára. Katla Þöll:

Eitt sinn sveitamaður, ávallt...

Vííí..
Hlésíin okkar er komin heim, óójá. Það er bara gott að sjá hið fagra fés hennar á ný.

Vika í júbileringu á Laugarvatni, þá kemur líka Ásdís, Héðinn og fullt af flökkudýrum (Júdasar vinahandbókar Mattheu)
Gaman gaman...




1 comment:

Anonymous said...

En hvað Katla er skemmtileg blanda af Æsu og Þráni. Og segðu Arndísi að vera ekki mikið í gufu og heitum pottum...í hennar ástandi!
Knús og mundu eftir report loforðinu.