Wednesday, November 06, 2013

The Neverending Story

Mér er tjáð að þarna úti sé fólk að hugsa til mín og þykir mér vænt um það. Takk, þið vitið hver þið eruð ;) Aðgerðin er búin og tókst vel að sögn lækna. Ég er öll að koma til, saumarnir farnir og krúttlegt ör búið að bætast í safnið. Þessa dagana er ég í rannsóknum (og lítilli meðferð) sem miða að því að hjálpa læknum að meta hvort ég þurfi í áframhaldandi meðferð og af þeim sökum hef ég verið eins og grár köttur á hinum fjársvelta Landspítala undanfarið. Það er óþarfi að tíunda ástandið í heilbrigðiskerfinu hér á hálfdauðu bloggi á alnetinu, við ættum öll að vera meðvituð um stöðuna en mér tekst samt alltaf að verða jafn hissa þegar ég rekst á veggi í þessu ferli mínu. Ég vissi að von var á lyfjum fyrir mig að utan og beið og beið (og beið) eftir símtali. Þegar það kom ekki eins og til stóð, hringdi ég í lækninn, fór sjálf á stúfana og náði í lyfið og labbaði mér upp á krabbameinsdeild til að finna einhvern til að sprauta því í mig. Heilbriðgisstarfsfólk er allt að vilja gert og því var það nokkuð auðsótt mál en þegar búið var að blanda lyfið kom að því að finna stað á deildinni til að komast afsíðis og fá sprautuna. Þrátt fyrir mikla leit fannst ekki autt skúmaskot í næði, svo blóðrjóður hjúkrunarfræðingurinn benti mér á að fylgja sér inn á skrifstofu læknis sem var í óða önn að senda tölvupóst og tala í símann. Hann gaf bendingu um að honum væri sama þó við kæmum okkur fyrir þarna hjá honum og þannig atvikaðist það að ég girti niður um mig brækurnar og fékk hjúkku til að sprauta mig í rassinn inni á skrifstofu hjá grunlausum lækni! Aftur sat ég andspænis blóðrjóðum heilbrigðisstarfsmanni í dag sem sagði að annar armurinn á skannanum sem ég fer í á föstudaginn væri bilaður og af þeim sökum tekur helmingi lengri tíma að skanna mig en annars. Ég má búast við svona 5-6 klst. þar sem ég er óluð niður og hálfbilaður skanni sér um verkið. Slæmu fréttirnar eru þær að ég má ekkert hreyfa mig á meðan. Góðu fréttirnar eru þær að ég má hlusta á hljóðbók, svo nú leita ég til ykkar um hugmyndir af góðum hljóðbókum fyrir föstudaginn og/eða hvar sé hægt að nálgast þær.... Að þessu sögðu langar mig koma þeim skilaboðum áleiðis til frúarinnar í Hamborg að ég veit sko alveg hvað ég myndi gera við peningana sem hún gæfi mér! -Lifi Landspítalinn- P.s. Eins og sjá má kann ég ekki ennþá á Enter-takkann á þessu bloggi.

4 comments:

Sjonni said...

Gangi þér vel, snúllurass!

Unknown said...

Skemmtilegur pistill um alvarlegt málefni. Hann mætti fara sem víðast. Gangi þér vel.
Auður

Unknown said...

Elsku Matta ég finn til þér.
Ég er að hlusta á hljóðbók..Only time will tell eftir Jeffrey Archer-kannski ekki nógu skemmtileg fyrir skannan en hey þú myndir þá kannski getað sofið ;) Ert velkomin að fá hana í ipdoddinn þinn.

Bestu kveðjur, Ólína

Sigga Björg said...

Elsku Matta, datt inn á þetta blogg frá fésbókinni, svakalega ertu góður penni.
Gangi þér vel í öllu þessu ferli og þér er velkomið að leita til mín ef á þú þarft á hjúkrun að halda.
kveðja
Sigga