Þó hann sé ekki mikið eldri en mjólkin í ísskápnum mínum, hefur honum alveg tekist að gera hundafríkið mig, að kattakonu.
Hann er æði!!!
Eftir matarboð í vesturbænum í kvöld, rúntuðum við Gunni að Gróttu. Rómantíska kattakonan, ég, átti von á samræðum um ástina, lífið og tilveruna; að minn kæri myndi halla sér að mér og hafa orð á því hversu vel ég passaði við hið magnaða sólarlag... Þegar við vorum sest á stein við sjóinn og ég fann að á þessari stundu fengi ég svar við spurningunni um tilgang lífsins, opnaði Gunnsi skoltin og ruddi út úr sér þessar mjöög svo órómantísku setningu: "Í dag, þegar ég var í golfi, gleypti ég flugu, hún festist í hálsinum á mér og stakk mig!"Ooog í þeim töluðu orðum var Bára komin í bleyti og mæjónesan orðin gul ;)
5 comments:
Matthea Sigurðardóttir. Þú ert óborganleg.
Fínar tennur á Gunna. Á hann nasaháraklippur eða er hann bara svona vel heppnaður í nefinu?
Ást og rómantík frá vetraríkinu í Cairns.
Hahahahaha hehehehe, ég hló lengi lengi eftir símatalið rétt eftir þessa rómantísku stund...:) Þið eruð bara æði,
Alma Ýr
Ohhh þessar dúllur (kærastar) koma manni sífellt á óvart!! Gotta love'em ;)
Hlæ hlæ hlæ!!!
kiss kiss kiss Íris.
phahahahahhahahahahahha elska ykkur!!!!!
-hlé
Post a Comment