Tuesday, January 30, 2007

Magasár

Já ykkur get ég sagt að ef þetta geislajoðferli drepur mig ekki (sem það gerir auðvitað ekki) þá dey ég úr spenningi yfir þessum leik!!!
Váááá hvað þetta er spennandi. Nú er gaman að vera íslendingur. Veit af Írisi minni einni á bar í Köben að naga á sér táneglurnar, komin í rauðvínið að hvetja sína menn!
Ég hins vegar æði hér um í kompunni minni og garga reglulega, eflaust hafa aðrir sjúklingar á deildinni getið sér um það af hverju ég sé í einangrun...
úfff.. framlengingin að hefjast!

2 comments:

Anonymous said...

hæ Matta mín, já það eru ekki alltaf jólin, fjandans tap f. dönum, ok eitt mark, getur ekki verið minna, vertu áfram dugleg "joðið" mitt, það er sko fullt af ættingjum út um allan heim sem bíða eftir að þú verðir frjáls úr prísundinni
gott hjá gunna þínum að láta ekkert stoppa sig í að fá að sjá elskuna sína
hlakka til að heyra í þér knús og margir kossar bm móða

Anonymous said...

ansdskotans djöfull...... hér var allt löðrandi í svita...... peter sefur á sófanum í nótt.... ég tala ekki við hann í 3 daga...... djæsus orka ekki að fara í skólann á morgun..... gangi þér vel..... við hugsum til þín hetja....... eva og pési