Monday, October 31, 2005

Útreikningur

Það tekur mig akkúrat sama tíma að ganga frá hurðinni niðri í Kringlunni (rétt hjá lottóinu), inn í ríki, kaupa stóra Gammeldansk, pakka henni inn, fara upp í Pennann og kaupa kort og aftur að hurðinni og það tekur kerrusafnarann í Hagkaup að opna pepsíið sitt og klára það...það sannaðist sko í hádeginu í dag!

1 comment:

Sigurbjörg said...

Um daginn ætlaði ég í grandaleysi mínu að aka upp bílabrautina upp á millihæðabílastæðið í Hagkaupsenda kringlunnar.

Kerrusafnarinn smokraði sér framfyrir mig og keyrði kerru eftir miðri bílabrautinni í stað þess að nota gangstéttina.

Hann var í góðum fíling. Hann var lengi.